← Öll verkefniISEN
Bar UMI með innbyggðri lýsingu og viðarrimlum
VerkefniHótel og veitingastaður
ÞjónustaHeildarhönnun og hugmyndavinna
Ár2017

Frá hugmynd að heildstæðri upplifun.

Heildarhönnun UMI hótels og veitingastaðar, unnin í nánu samstarfi við eigendur. Verkefnið náði frá mótun þeirrar hugmyndar sem UMI var byggt í kringum til hönnunar allra rýma hótelsins og veitingastaðarins. Árið 2025 hlaut UMI einn MICHELIN Key, viðurkenningu fyrir mjög sérstaka hótelupplifun. Í mati Michelin er meðal annars horft til arkitektúrs og innanhússhönnunar, persónuleika og tengsla við staðinn — þátta sem voru leiðandi í hönnunarvinnunni frá upphafi.